~Lifnaðarhættir Lexa Flex~
23.12.2006 15:13:05 / e-rose

merry christmas

Jæja! Nýkomin heim úr vinnunni og jólastússið að fara í gang! Á eftir að pakka inn smá og sendast með pakka og svo er það Laugarvegurinn með Friffa mínum í kvöld! :) og vonandi hitta nokkrar góðar vinkonur! En allavega þá vil ég bara óska öllum Gleðilegra jóla og áramóta og minna á það að ég fer vestur 27. Des - 4. Janúar svo að ég blogga kannski ekki mikið á meðan:) En allavega þá gengur aksturinn vel 8) og er ég búin að fara ófáar  ferðir í Kringlunna og Smáralind síðan ég fékk prófið sem var nú bara fyrir nokkrum dögum! En já... Það verður ekki meira í bili :) Sjáumst öll hress og kát á nýju ári og hér koma nokkur heit sem ég ætla að setja mér :)

  • Fara oftar í Hress!
  • Halda áfram í gítarnáminu!
  • Standa mig í skólanum og mæta vel!
  • Hætta að naga neglurnar!
  • Horfa minna á sjónvarp!
  • Eyða minna, spara meira!
  • Fara oftar vestur til pabba og co!
  • Hitta systkini mín oftar!
  • Borða minna nammi og hætta að drekka gos!
  • Vera minni félagsskítur!!
  • Og halda áfram að vera sona æðisleg og góð eins og ég er :haha:

Já, blogga einu sinni samt fyrir áramót! Og ætla þá að rifja upp nokkkrar eftirminnilegar stundir á árinu sem er að líða gæti orðið nokkuð skrautlegt:lol:

                                        

Uppáhalds myndin mín af mér 2006

Emma-

SandraDögg skrifaði
Þín var sárt saknað í dag. Hlakka til að sjá þetta áramótarblogg haha:) Farðu svo að láta sjá þig! Elsk jú:*
Emma. skrifaði
Gledileg jol saeta ;*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.